Leita í fréttum mbl.is
Embla

Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2009

O.M.G.

Ja nú er eins gott að fara að biðja guð að hjálpa sér.   Margar dýfur hefur maður nú tekið undafarna 110 daga. Fyrst þegar bankarnir féllu, svo þegar fólk skemmdi og sýndi óvirðingu, og svo núna .   uffff þurfum við nú að takast á við stjórnar-kreppu, í viðbót við allt annað . Var ekki allt í lagi að bíða kosninga???.

Sem ung kona nýkomin með kosningarrétt fór ég á marga stjórnmálafundi . Það var á þeim árum  þegar svoleiðis fundir voru skemmtilegir.  Fulltrúar allra flokka mættu á svæðið og svo var tekist á.  

Það má segja að ég flokkist undir að vera pólitískt viðrini, hef kosið alla hugsanlega flokka sem hafa poppað upp,,,,   nema D.listann. Strax í byrjun tók ég þá einhliða ákvörðun að kjósa ekki D. Þar sem ég er venjulég verkakona, sem er samt vel mentuð í lífsins skóla, þá á ég bara ekkert erindi í D. 

Í dag hef ég hlustað og horft á stjórnmálamenn okkar, hella yfir okkur hvað á að gera ...  Já já fínt ,, en hvernig á að gera hlutina og hvernig á að fjármagna það sem þeir ætla að gera.  Engin svör.  Engin svör...    Það eru ekki einu sinni komin svör hvort Davíð og kumpánar verði látnir hætta.

Svo það má segja að nú er illa komið fyrir mer ,,,  já verulega illa komið fyrir mer. Eftir að hafa horft og hlustað á helstu áhrifa-menn????  (hver hefur áhrif)  þjóðarinnar þá verður að segjast  að eg trúi D-mönnum best. Já illa er komið fyrir anti-D-manni, að bíta í þetta súra epli... Já eplið er súrt en mer sýnist D-ið vera trúverðugast í stöðunni í dag.

Já Guð hjálpi okkur , nú fer eg alvarlega að hugsa um landsflótta, allt betra en þetta...........

Að síðustu hugið vel að heilsunni og farið í veikindafrí þeir sem veikir eru ..... Það er alþekkt að " Kirkjugarðarnir eru fullir af ómissandi fólki "


Hana nú

Ekki voru þetta góðar fréttir með hann Geir!!!   Ég óska honum góðs bata..   Og það vil ég segja við ykkur hin, " Nú skuli þið róa ykkur niður og huga að heilsunni"   Við erum búin að bíða í rúmlega 100 daga , munar okkur um aðra 100 daga.??    Nú skulið þið fara í að skipta um fólk í brúnni blanda sama gömlu og nýju.    Því ef fólkið vill nýtt blóð þá viljum við ekki  einhverja sem hafa setið á þingi í "100 ár"  Lítið aðeins inn á við og takið Ísdrottningar flísina úr augunum. 
mbl.is Ögmundur: Lofar ekki góðu að bíða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eftir reiði kemur depurð

Maður varð alvég agndofa þegar bankarnir hrundu og allt fór á annan endann. Fljótlega mynduðust þrýsti-hópar sem komu saman víðvegar um landið til að þrýsta á stjórnvöld til að gera eitthvað fyrir fólkið í landinu. Já fólkið sem var að missa vinnuna , og enga vinnu að hafa, fólkið sem er með 100% lán og sér ekki hvernig það á að borga af þeim, fólkið sem var búið að taka svokölluð körfulán, fólkið sem var að missa íbúðirnar sínar, unga fólkið , gamla fólkið, allir sem mistu lífeyririnn sinn. 

Já allt þetta gerði mann dapran og leiðan og þegar ég var ekki í vinnu fór ég að mæta á mótmæla fundi og mætti ég líka niður á Torg Já nú skulum við standa saman.  Mótmælum

Ég varð ekki smá glöð þegar ég sá að nú ætluðu menn að mæta og hafa hátt fyrir framan alþingi, nú átti sem sagt að trufla störf alþingis....... jessss

  En hvað gerðist mótmælin snerust upp í andhverfu sína eins og oft undanfarið, já snerust upp í að mótmæla lögreglu landsins sem stóðu þarna og unnu vinnuna sína að stakri prúðmennsku miða við aðstæður.    Hver mundi vilja láta ganga á eftir sér og láta hamra í hausinn á sér , mundu þið vilja láta hrækja á ykkur,henda skyri,henda eggjum , múrsteinum já og gangstéttahellum, og já það sem er síðast sort mundi ekki fara um ykkur að fá fullan poka af saur og hlandi yfir ykkur.  Ég verð að segja að ég tek ofan fyrir lögreglunni ,og ef ég væri í Reykjavík mundi ég baka heilt fjall af pönnukökum og færa þeim!!!!! Þó svo ég sé ekki duglég við að baka pönsur!!!!

Þegar ég horfði á fréttir í gær og dag þá var ég öldungis hissa þarna sá maður mæður með barnavagna, ung börn jafnvel ein á ráfi , einn mann sá ég í fremstu röð með smábarn framan á sér. Er þetta ekki barnavermdar-mál???    Miðað við hávaðan ,lætin eggjakast, steinakast , piparúða hummmmm    Hvað er fólk að hugsa.    Mer dettur stundum í hug að þessu fólki sé ekki annt um börn sín.

Mer finnst allt í lagi að börn landsins fái að fylgjast með ,, en hvernig gera þau það? Með því að standa niður í bæ og horfa á fullorði fólk skemma og eyðileggja sýna öllu og öllum óvirðingu . Eigum við að kenna börnunum að það sé allt í lagi að eyðileggja og skemma ef maður er reiður. Hvað ætli þið gott fólk að segja börnunum seinna þegar þau eyðileggja eitthvað heima . Auðvita segja þau æææ ég var reiður. Allt í lagi.

Fyrir mer er svo komið að nú fæ ég mig ekki til að sækja mótmæli meir,  Ég held að fólk verði að átta sig á hverju það er að mótmæla.


Reiðistjórnun

Já þar sem eg var á næturvaktinni í nótt eyddi eg hluta af nóttinni í reiðistjórnun.  

 Svo nú skal þakka!!!!!   Mikið getum við þakkað fyrir að hafa lögregluna sem vinnur sína vinnu ,sem eiga foreldra ,maka og börn, sem þakka fyrir að börnin þeirra makar og foreldrar komi ósködduð heim úr vinnunni . Já að hafa lögreglu sem tekur næstum brosandi á móti öllum eggjunum og skyrinu sem fólk hefur efni á að kaupa og grýta í þá . Þökkum fyrir að hafa lögregluna til að kenna um að börnin okkar eru í fremstu línu í óeirðunum. Mistli eg af einhverju erum við í stríði við lögguna????

Mikið getum við þakkað fyrir alla þingmennina okkar sem eru þó í vinnu hjá okkur fyrir að góla og garga í þingsal. Er þessa stundina að horfa á Alþingi. Ekki má gleyma öllum ráðherrunum sem eru ornir svo sýrðir af einræðinu að þeim finnst nú alveg óþarfi að upplýsa alþjóð um gang mála. Eg vil nú trúa að þeir séu eitthvað að gera??????

Ekki má gleyma að þakka fyrir alla guttana sem land og þjóð dásendaði fyrir framtakssemina og fjármálavitið já við vorum stór,,  já íslendingar áttu eignir um allar Evrópu og þó víða væri leitað. Hvað með það þó þeir hafi siglt þjóðinni í strand, nítt af okkur skóinn

Þökkum fyrir sýslumanninn á Selfossi sem ætlaði að fangelsa mann og annan , á meðan allir stór féglæponarnir leika lausum hala og kaupa og selja af vild bæði innanlands og utan.

Þökkum líka fjármála eftirlitinu fyrir að gleyma hlutverki sínu og taka þátt í gróðanum og ósómanum.

Þökkum fyrir ef einhver vill taka að ser  og er í stakk búin til að koma okkur út úr þessari vitleysu.

Eg spyr samt enn og aftur er einhver sem er í stakk búin til að stjórna ,???? Getur einhver svarað því????????     Ekki veit eg .   


Mætti þarna

Eg frétti sannarlega af þessum mótmælum og dreif mig niður á torg.  En o.m.g. eg var ekki að sýna samstöðu með skemmdarverkum og skrílslátum fyrir sunnan. . Nei eg vil mótmæla fyrir okkur, á móti spillingu og óstjórn. En hverjir eru til að taka við? Svarið því einhver


mbl.is Samstöðumótmæli á Akureyri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fokk !spilling !óreyðir!

Nú er mer allri lokið .  Slysaðist til að horfa á fréttir.   Hvað eru börn og ólögráða unglingar að gera í frontinum á svona mótmælum. Hvar eru foreldrarnir?  Á myndum að sjá eru ótrúlega mörg börn þarna.  Mömmur koma og væla um að börnin þeirra hafa verið tekin og hvað?????   Er þetta ekki barnavermdar mál ???  Foreldrar passið börnin ykkar...  Er allt í lagi að lemja lögregluna í hausi ,,   Henda skyri , Mer fannst ótrúlegt að sjá jafnaðargeðið hjá löggunum þegar þeir voru hættir að sjá út fyrir skyrslettum, stóðu samt kyrrir , henda grjóti, í lögregluna , sem er ráðin af mer og ykkur öllum til að halda lögum og reglu í landinu. Hvað er að ykkur ???   Vælið ekki að lögreglan eigi að halda uppi lögum og reglu??????

Andskotin svo verð eg að borga þrifnað á svæðinu!!!!!!!!!!!!!!!!!!

Ekki bætti úr skák þegar sýnt var frá þinginu Ögmundur var eins og naut í ræðustól .  Hvað er að HANN ER Á ÞINGI  sjálfur.  Taktu þína ábyrgð Ögmundur.

Allar fréttir snúast um spillingu og meiri spillingu..    Og eg vil mótmæla þessum andskotum sem eru spilltir og finnst það bara allt í lagi.  Svo er verið að koma ábyrðinni yfir á mig humm. Eg hef ekki verið á neinu neyslu-fillerýi. Eg hef alltaf unnið fyrir minni neyslu svo eg tek ábyrgð á því. Spillararnir geta bara borið sína ábyrgð.

Nú hef eg verið hlint mótmælum en eftir þessa eyðileggingu og ósóma fer eg að hugsa mig um.     Hvað er verið að gera mig ábyrga fyrir einhverjum sem standa og lemja rúður sletta skyri og eyðileggja .  Svo verð eg að borga í viðbót við allt hitt.  Er ekki hægt að mótmæla þannig að eg þurfi ekki að borga. Eg bara spyr enn og aftur.????   Svo er farið að gusa málningu hvað verðu næst!!!  Bara fokk fokk fokk   

Já hvernig getur maður annað en orðið reiður þegar maður situr undir þessari vitleysu   Haldið börnunum heima þegar svona mótmæli eru í gangi. ´Munið að lögreglan er í vinnu hjá okkur að halda uppi lögum og reglu hvort sem þú átt í hlut eða þessir spilltu!   

 


Dagurinn í dag...

Já í dag fór eg á blogg-vina-hitt.   Mikið var það gaman, lífgaði upp á skammdegið.

                           IMG 0254

  Tekinn var púlsinn á þjóðmálunum og margt annað rætt.

     IMG 0252

Við fengum okkur líka kaffi ,, já mikið kaffi og tertur líka, annars var svo skrítið að á kaffihúsinu var hörgull á brauði og tertum svo skrítið sem það nú er.

                  IMG 0253

Þau komu alla leið frá Ólafsfirð.

                              IMG 0248

Þarna var líka ungt fólk  sem bæði er að blogga og ekki.

                                       IMG 0247

       Sumir voru meira ólettir en aðrir  hehehehe                        

                                           IMG 0245

Og mikið var hlegið.   mikið var þetta gaman , manni er strax farið að hlakka til næsta hittist.

Takk fyrir mig.


Blogg-vina-hitt

Tók þetta orðrétt af síðunni hjá Önnu Guðnýu.......

Bloggarar norðan heiða.Þá er komið að því!

Nú ætlum við að hittast aftur, það var svo gaman síðast.

 Kaffihús bloggara.

 

Við höldum okkur við sama stað, með þeim fyrirvara á að okkur verði hleypt inn. Held samt að allir hafi hegðað sér með sóma síðast.Smile Ætlum þó að breyta deginum og hittast núna á sunnudag.

Sem sagt.

Staðsetning: Kaffi Karólína, Rub 23, Listagilinu

Tími: Sunnudagur 18, jan kl. 16.00

Mig minnir að síðasta auglýsing hafi verið miklu orðfleiri en veit svo sem ekki hvað á að skrifa meira.

Hlakka bara til að sjá alla sem hafa tækifæri til að koma.

Góða nótt


Nú árið er liðið

Já nú árið er liðið ... 'Á föstudaginn fór eg með einum syni mínum á þrettándagleði í Réttarhvammi.og að vanda skemmti eg mer alveg bærilega , nema gamla hafði gleymt að klæða sig almennilega og var komin með munnherkju af kulda , og mátti ekki mæla . Og þá er nú mikið sagt, og fokið í flest skjól. Þarna hitti maður mann og annan .        

                             Her má sjá Helga alsælan með brennuna í baksýn.

                                           IMG_0213

                          Helgi hitti vinnufélaga sem gaf honum stórt blys.

                     IMG_0217

                                   Þarna hittu við bloggvinkonu mína hana Önnu Guðnýu

                                IMG_0221

               Svo var jólasveininn þarna á leið til fjalla með bræðrum sínum.

                IMG_0229

      Hvað  er  þetta með þessar stelpur sem eru alltaf að kyssa Helga???

                              IMG_0235

                                       Spakmæli dagsins er :

             Sá sem setur sig í spor annarra er góður hlustandi.


Það heitasta í dag.......

Mesti skandallinn nú þegar á þessu ári og þó víða væri leitað , er án efa hreppaflutningar heldri borgara fram í sveit.    Annars má með sanni segja að ef til vill gerir það ekkert til að rífa þau upp með rótum og flytja þetta fólk  nauðugt í einangrun. Því þó ekki taki nema 10 mín að keyra fram í Kristnes þá er það svo að það fólki sem er duglegast í heimsóknum á ekki bíl og  ekki er bensínið svo gefins sýnist mer þessa dagana. Eða hrúga þeim saman eins og ...... (nú datt mer eitthvað ljótt í hug sem ekki er prenthæft,) og mörgum í herbergi.   Er nú ekki nó að þurfa að eyða síðustu dögunum í litlu herbergi , heldur þarf nú að deila kytrunni með einum og upp í fjóra. Þetta er til helborinnar skammar.

Í síðasta pistli fór eg í svolitla fortíðarsýn. Nú ætla eg að bregða mer til framtíðar.  Þar sem fólk hættir að fara til tannlæknis með sig og börnin.   Eining hættum við að heimsækja lækna ja alla vega förum við ekki fyrr en við erum fárveik og allt komið í hönk. Gamalt fólk er hrúgað saman eins og kindur í rétt. Fjölsk flosna upp , Fólk missir vinnuna,

Börnunum fjölgar á´bak við hverja fóstru  eg veit að þetta orð er ekki  lengur til, en þar sem við stefnum í torfkofana þá hlýtur allt þetta gamla að koma aftur.  Spilling , siðleysa , spilling hvar sem litið er.

Það er sem sagt bara dauði og djöfullinn framundan..........

 

Annars er nú allt gott af mer að frétta nema illa gengur að snúa ofan af kellingunni með svefn og matarræði.    Veðrið er aldrei eins, sveiflast frá að vera vorveður upp í frosthörku og síðan mikinn snjó. Akkúrat núna er smá mugga og nokkuð kyrrt. Sú gamla plampaði á brennu á gamlárskvöld og líka á föstudag eftir þrettánda mest til að sjá flugeldana , . Stóð þarna með galopinn munninn og var mesta mildi að hún fékk ekki flugeldaprik ofan í kokið.

Annars hefur mest verið sofið , gónt á sjónvarp, og unnið.

 

Veittu börnunum þínum athygli.

 Gefðu þér tíma til að vera með þeim,

taktu eftir þeim, elskaðu þau

og sýndu þeim ástúð og hlýju.

 Á þeim byggir framtíðin


Næsta síða »

Höfundur

Unnur María Hjálmarsdóttir
Unnur María Hjálmarsdóttir
Er lífsglöða kona sem dettur af og til í sjálfsvorkun og þá er gott að nöldra her. Er á besta aldri á besta tíma . Skál og verum glöð!!!

Smelltu á þetta...

Er ég á þessum lista??

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband