Leita í fréttum mbl.is
Embla

Bloggfærslur mánaðarins, desember 2008

Gleðilegt ár

Eg óska öllum yndislegu bloggvinum mínum árs og friðar.  Heyrums glöð á nýju ári.

Jól

 Eg óska öllum bloggvinum og öðrum

sem þetta sjá

 

               GLEÐILEGRA JÓLA

 

og megi þið hafa það ljúft um hátíðina

Sjáumst hress þegar við sjáumst


Ætla mætti

Já ætla mætti að eg hafi verið  týnd og tröllum gefin. En svo er sannarlega ekki!!!!

Lífið hefur liðið hjá í vinnu hitta börnin, vinnu, skemmta mer með barnabörnunum, kaffihús, vinna , kaffihús.  

 Nú auðvita hef eg líka pakkað inn jólapökkum og sitthvað fleira sem tilheyrir jólunum.  Keypt og undirbúið jólin fyrir og með skjólstæðingnum , Helg og sjálfum mer.   Ekkert bakað, ......   Svo eru það jólakortin eitthvað hefur farið fyrir ofan garð og neðan að skrifa á jólakortin.  hummm   Eg held samt að það se mánuður síðan eg tók kortakassann og ætlaði sko að byrja snemma í ár, og viti menn,  það eru komin nokkur nöfn á listann í tölvunni. Já því bókin sem allt í sambandi við jólin er skráð í svo sem,  gjafir sem eg gef og fæ , nöfn og heimilisföng þeirra sem eg sendi jólakort,,,  já þessi bók er tínd niður í einhverjum kassanum fram í geymslu.  Ætli hún verði ekki bara þar þangað til eg flyt næst.!!!!!! Svo elsku vinir ef þið fáið ekki jólakort frá mer núna þá hef eg bara ekki náð því og eg ætla ekki að láta það stressa mig.

Dagurinn í dag :::: " Kærleikurinn horfir fram hjá útlitinu en lítur á hjartalagið."


Jólin koma!!!

Eg hitti einn vin minn á dögunum og hann spurði:  "Ertu búin að öllu"?   Hvað er þetta allt ?  Er það eins og eg gerði her áður fyrr? Þá gerði eg hreint í hólf og gólf, bakaði 24 sortir + nammi, sauð niður tómata og rauðrófur, bjó til konfekt, saumaði föt á börnin, vann svo vinnuna sína, skreytti svo allt spikk and span. Var líka með stórt heimili..   Á aðfangadag var maður svo þreyttur að maður eyddi allri orkunni í að halda ser vakandi ef það  tókst þá, annars dró maður bara ýsur og vonaði að börnin tækju ekki eftir því. .   Öðru vísu mer áður brá.  ´

Já hvað er þetta allt?       Í dag ,,,,  koma jólin hvort heldur sem eg er búin að gera þetta eða ekki , svona ykkur að segja er eg hætt þessu öllu  

Nú legg eg aðaláherslu á að gera eitthvað með þeim sem standa mer næst, sit á kaffihúsum með vinum og vandamönnum og læt mer líða vel.    Eg er hætt að baka, borða það bara sjálf, kaupi bara piparkökur til að eiga , svo eru þær góðar. Hætt að sauma á börnin ,  öll börn flutt að heiman.  Já eg er hætt þessu öllu, veit heldur ekki lengur hvað það þýðir::::::   Þetta allt    ???????? 

Svo lítið vel inn í kaffihús sem þið farið fram hjá ef til vill sit eg þar!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!

                                                  jolasveinn8


Það var og.........

Sem segir mer það að þarna eru mánaðarlaunin þau sömu og árslaun mín??????   Á þetta að vera svona????

                


mbl.is Laun stjórnenda helstu lífeyrissjóða munu lækka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kallinn

Þessi flotti kall á afmæli á morgun, hann verður 31 ára. Mer er sagt að Hemmi Gunn eigi líka afmæli á morgun en hann er  víst örfáum árum eldri.  Jæja Helgi nú ertu í síðasta tölvutímanum  fyrir jól.

       TIL HAMINGJU MEÐ AFMÆLIÐ GAMLI MINN!!!!!!!!

                                             Danmerkurferð 2007 283                                                                        Danmerkurferð 2007 194


Áfram nú!!!

Eg stið þig heilshugar Sturla og gangi ykkur vel. Sjálf hef eg seð að það er gengið harðara fram í að rukka. Auðvita á maður að borga það sem maður fær að láni en sýnið sama umburðalyndið og áður!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!
mbl.is Mótmæla innheimtuaðferðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Landsbankinn

Greiðslustöðvun Landsbanka Íslands hf. nær ekki til Nýja Landsbankans, NIB en hann tók við starfsemi, Landsbankans á Íslandi, 9. október 2008.

Hvaðer eg ekki að skilja????   Tók ekki nýi Landsbankinn við þeim gamla með manni og mús???

Eg segi nú eins og maðurinn : Eg ekki skilja.      Veit bara ekki lengur í minn haus hvað þetta þvaður þýðir allt saman.


mbl.is Landsbanki Íslands hf. fær greiðslustöðvun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

O.M.G.

Eg segi nú bara eins og unga fólkið O.M.G. hvað er maðurinn gamall?  Þegar eg las greinina þá datt mer í hug eitt barnabarnið mitt sem er 5 ára, sem var með mer um daginn og sagði : Ef þú gefur mer dót. þá verð eg góður.!!!!!   Hvað er í gangi?????   Getur maður annað en hlegið að þessu, nei .  Svo læðist efi að ,  hverjir kjósa maninn???    Jú það eru margir sem eru enn blindir á veruleikan. Aumingja Davíð !!!!    Af hverju þekkjir  hann  ekki sinn vitjunar tíma og hættir  sáttur í staðin fyrir að bylta ser eins og sært dýr í snöru.????
mbl.is Davíð: „Þá mun ég snúa aftur"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Brostu

Brosið þitt bjarta

gætir eytt drunganum úr lífi

einhvers annars í dag.

Já  Dóttir mín hvatti mig til að fara að verða bjartsýnni?  Eg vissi ekki að eg væri svartsýn?   En svona er það , oft ser maður ekki það sem næst manni er.   Auðvita er eg þakklát fyrir mín yndislegu börn og frábæru barnabörn! Það er ekki spurning.   Og eg er alltaf að segja hvað jólaljósin ilja mer , fer oft hringi í bænum til að skoða. Og eitthvað var eg þreytt í gær því eg gleymdi að minnast á stóra ljós-hjartað sem er farið að lýsa fyrir handan. Já í sumarbústaðarbyggðinni.  

Svo að lokum það er svo gott að kenna bara frú Kreppu um allt sem ekki er gott og aflagað fer.

Farið glöð inn í daginn eg geri það þar sem eg sit og hlusta á moksturstækin hamast útiGrin


Næsta síða »

Höfundur

Unnur María Hjálmarsdóttir
Unnur María Hjálmarsdóttir
Er lífsglöða kona sem dettur af og til í sjálfsvorkun og þá er gott að nöldra her. Er á besta aldri á besta tíma . Skál og verum glöð!!!

Smelltu á þetta...

Er ég á þessum lista??

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband