Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2008
29.1.2008 | 03:18
Hvað er í gangi??
Það er nú skrítið þegar maður kemst á snoðir um það að þótt maður sé ekki í stjórnmálum og ekki vitund frægur þá er samt hægt að kasta hnífasetti í bakið á manni, já og jafnvel snúa hnífnum í sárinu þangað til það urgar í beinum!!!!!!! 
Eg átti fyrir nokkru tvo alveg frábæra vini,,,, að eg helt... ... Annar hringdi gjarnan í mig, svo kom hann og drakk hjá mer nokkra kaffibolla og við töluðum um lífið og tilveruna, já eg varð líka svona trúnaðar vinur hans. Eg gæti sagt margar skrautlegar sögur af okkar samtölum, ennnn þar sem eg var trúnaðar..... þá fara engar sögur í loftið frá mer. ( Eg veit samt ekki alveg af hverju eg held þennan trúnað þar sem umræddur VINUR telur að eg taki ekki ábyrgð á orðum mínum og gerðum, ætti eg þá ekki bara að láta allt flakka''????)
Með hinum VINUR minn upplifði eg mikið og margt skemmtilegt, við hjálpuðum hvert öðru , hann reif með mer eldhúsið og eg kenndi honum að strauja skyrtur og margt fleira brölluðum við saman, og ófá skipti var eg búin að rjúka af stað og keyra hann, ,,, allt fyrir félaga minn.. Við ásamt fleirum fórum margar ferðir saman og skemmtum okkur mjög vel . Er skemmst að minnast þegar eg bauð honum ásamt tveim öðrum í óvissuferð austur um land síðasta sumar.
Eg verð víst að játa að þarna brást dómsgreind mín all hrapalega, þar sem helsta dægrastytting þeir í dag er að sitja niður á Glerártorgi og níða af mer skóinn, allt það slæma sem fyrir þá hefur komið er að sjálfssögðu mer að kenna og það er skammt frá því að segja að það er hreint og beint sviðin jörð þar sem eg hef gengið, er eg þar að auki alveg brjáluð ,ekkert minna enn það. ... já eg hefði betur hlustað þegar eg var vöruð við ser í lagi trúnaðarvininum, sem var sagður illgjarn og kæmi alltaf aftan af fólki með hroka og slægi ser upp á kostnað annarra. Nei eg eins og kjáni varði VIN minn og sagði að hann væri breyttur , orðin góður og ljúfur. hahahahahah það var það helsta. Svo nú sit eg uppi með það að skilja svolítið þegar verið er að tala um að vera með hnífasettið í bakinu!!!! Ætli allir hnífar séu uppseldir á Akureyri???
Svo hugsar maður svolítið lengra , já einmitt, eru ekki þessir ágætu herramenn bara með lítið sjálfsálit????? Halda þeir ekki bara að þeir verði stórir,, við að níða mig, og þora samt ekki að segja það við mig????
Svo skulum við hugsa enn lengra og hvaða máli skiptir það mig hvað þeim finnst ??? Alveg rétt nákvæmlega ekki nokkru máli!!!!! 'Ákvað bara að velta þessu her inn til að losna við sorann..
Og svo mörg voru þau orð.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
26.1.2008 | 03:50
Stórhríð???????
Í morgun var eg vakin með nístandi símahringingu. "Hver hringir fyrir allar aldir" hummmmm. Eg svara urgandi röddu, Halló " Ertu nokkuð af flandra úti í hríðinni mamma " var sagt undur blítt. "Það veit eg ekki ,er hríð" ??urraði eg, "hef ekki litið út". Svo ákvað eg að hætta að urra þar sem dóttir mín í sveitinni var aðeins að vara mig við veðrinu sem var ekki alltof gott. Enda klukkan farin að halla á ellefta tímann og komin fótaferðatími.. Sennilega væri þetta stórhríð á sunnlenskan mælikvarða ennnn. Að sjálfsögðu klæddi eg mig í hvelli, sturtaði í mig súrmjólk, klæddi mig í þykka peysu úlpu húfu og vettlinga og fór að taka jólaljósin inn. Sem að sjálfsögðu eg hafði slugsað með að taka niður. Stórhríð eða ekki hummmm.
Síðan brunaði eg til Helga, og við fórum í banka og aðrar reddingar. Svo þegar heim kom ákvað eg þar sem enn var snjókoma og renningur að bera jólin niður í kjallara. Tíu ferðir fór eg með kassa í mismunandi stærðum . Hvar var allt þetta dót? Og eg sem sleppti því að setja upp jólate-ið. Úti var svona einkennilegur snjór sem klístraðist undir skóna og ef eg hefði ekki slegið niður fótum eins og staður asni í hverri ferð væri eg núna önuglega svona eins og tveir metrar á hæð.
Fékk svo góða gesti í kaffi,svo var það vinnan.
Í augnablikinu er komið hið besta veður aðeins kalt þó ekki þannig að maður skjálfi.
Að þjóðmálunum er það helst?????????????? jú grænlenskir sleðahundar fagna veðrinu og njóta sín önuglega vel í hríðinni og kuldanum , vona samt að þeir finnist og komist heim.
Skattpeningar Reykjavíkurbúa eru vel varðir í húsa-- kofa kaupum á Laugarvegi.???? Eða þanig
Síðustu daga er maður bara hræddur :::Hvað er að gerast í þjóðfélaginu, ???? eru allir að ota sínum tota, ???? Hvar eru gildin???? Hvar eru hugsjónirnar???? Er valdabaráttan og hefndarhugurinn ofar öllu öðru??? Hvaða manneskja með fullu viti leggst svo látt að fara í svona stjórnmál???? Þvílík spilling á öllum sviðum og öll kurl ekki komin í ljós enn, vitiði til. Víðar er pottur brotin allavega sprunginn. Eg held að eg vilji engum svo illt að óska honum í stjórnmál,,,,,,, nema ef skeð kynni hann,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,???????????
Bloggar | Breytt s.d. kl. 03:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
22.1.2008 | 13:51
Júúúhúúú!!!!!!!!!
Já nú segi eg bara jú hú !!!!!
Er nú að byrja í törn og var á næturvakt í nótt. Kom eg heim svona rétt rúmlega níu, í morgum þá var sko 5gr. frosti og kulda. Velti mer upp í rúm og sofnaði með það sama ,við suðið í Dokt, Phill í eyrunum , þar sem hann messaði yfir stjórnsömu fólki. Vaknaði aftur við gargið í símanum mínum þar sem hann hamaðist við að reyna að vekja gömlu, stillti á blund, stillti á blund aftur, og aftur þangað til að eg hrökk upp fimm mín. í ellefu. já eg sem átti að mæta hjá læknir kl: 11. Hentist í fötin og út í bíl. Hvað??? svaf eg í eina öld ???? úti var komin þvílíka blíðan og 5 gr. hiti. Hentist eg nú niður í bæ og rétt náði á rettum tíma til líflæknisins. Er nú skammt frá því að segja að heilsan er bara nokkuð góð , blóðþrýstingurinn aðeins of hár , ( er þó á tveim lyfjum) En bara í góðum málum og síðast en ekki síst þá hafði horfið enn eitt kílóið, reyndar á tveim mánuðum , en fínn mál ekki raunhæft að það fari mikið meira á þessum tíma, og miðað við aldur og fyrri störf frúarinnar. Eins og eg hef áður sagt allt á niðurleið. Verð eg nú bara að segja það að eg er sátt , því þó eg hafi ekki dottið í kjötát, né graðkað í mig smákökur um jólin og ekki dottið í nammidósina og lokað á eftir mer . Þá hef eg alveg borðað nammi, drukkið gos og dottið í það og látið ýmislegt fleira slikkerí í vömbina. Bara sátt
Í þessum skrifuðum orðum skín blessuð sólin glatt inn um gluggann minn og hitar vel. Og eins og áður segir 5 gr. hiti úti og rífandi hláka.
Ekki veit eg nú hvernig borgarmálin á Íslandi enda. Miðað við nýjustu fréttir hljóta allir hnífar að vera uppseldir og standa í bakinu á þessum háu herrum sem haga sér þvílíkt að leikskólabörn mundu skammast sín fyrir svona hegðun. Oft er fjör í bæjarmálum á Akureyri en við komumst ekki með tærnar þar sem þið þarna í suðri hafið hælana.
Svo er líka farið að bítast um Fischers greyið sem engin hirti um nema örfáir góðar sálir her á landi nú allt í einu gera einhverjir ættingjar og eiginkona sér ferð til landsins til að rugla í reytunum hans. Hvar hefur þetta fólk verið????
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
17.1.2008 | 21:04
Flýgur stund
Já hratt flýgur stund, árið 2007 var rétt byrjað þegar það var búið!!!!
Einhvern tíman ætlaði eg að skrifa svona einhverskonar annál fyrir síðasta ár. Enn það árið byrjaði ekki serlega vel og endaði reyndar ekki vel heldur!!!!!!!!!!!!!!!
Samt skal þess getið að eg fór á skemmtilegt starfsfóstrunámskeið í byrjun árs, og útskrifaðist sem Starfsfóstra. Síðan var eg valin sem ein af þrem yfirfóstrum. Gaman það!!
Tók þátt í að gera starfsmat vegna vinnunnar minnar, og er skammt frá því að segja að aldrei hef eg verið höfð jafn mikið að fífli og við þá vinnu. Og ekki orð um það meir.
Var í árshátíðarnefnd hjá Búsetadeildinni. Kynntist þar frábæru fólki og var bara gaman og tókst árshátíðin vel og allir ánægðir.
Sólveig dóttir mín bauð mer á tónleika með Sir Cliff á vordögum. Alveg ógleymanlegt . Takk fyrir!!!!
Her er þessi sjarmur oooooooooo..
Brá mer í fermingu hjá Hjálmari og giftingu hjá Bigga og Ásu á vordögum. Var það haft á orði að eg hlyti að vera komin með mann þarna syðra, fór fimm ferðir í borg óttans með vorinu.?? huuummmm
Fór í íbúð í Reykjavík og síðar á sumrinu fóru við í Súðavík ,. Einnig fór eg nokkrar styttri og lengri ferðir með félögum mínum
Þetta fallega fólk fór á Súðavík og keyrði alla Vestfirðina.
Um mitt sumar bjó eg til ferð fyrir fimm fatlaða, sem við dóttir mín fórum með til Danmerkur og vorum í viku. Mjög skemmtileg ferð.
Her er svo þessi frábæri hópur sem fór til Danmerkur..
Tók svo að mer að keyra manni hring um landið og fóru við stóran hring og keyrðum við 2868 kílómetra á þessum 11 dögum sem ferðin tók. Sáum við margt merkilegt og samfærðumst enn og aftur um fegurð landsins.
Þetta eru þeir félagar sem komu með mer í hringferðina góðu!!!!!!
Fór á haustdögum á Fagnámskeið 1 sem skilar mer fimm einingum til frekara náms. Þar kynntist eg frábærum konum sem gaman var að vera með. Nú ætlum við að endurtaka leikinn og fara á Fagnámskeið 2 og ná okkur í aðra 5 einingar í viðbót. Hvað verður svo er ekki gott að vita?
Svo kom að því að 3 október sagði eg mig úr hinu Makalausa félagi sem eg hafði fimm árum fyrr verið með um að stofna ásamt öðru góðu fólki. Það að eg hætti var meðal annars það að eg þreyttist á því að þurfa að réttlæta það að vera makalaus í félagi hinna makalausu!!!!!!!..... Yfirgaf eg félagið með sorg og söknuð í hjarta, því oftast var gaman hjá okkur og þetta félag var búið að gera mörgum gott. Nú er eg búin að jafna mig , þar sem eg sé að engin saknar mín svo því ætti eg þá að vera með sút..??? Hitti bara mína ágætu vini sem þola mig eins og eg er með kostum og göllum.
Á haustdögum fjölgaði snarlega í fjölsk. þegar eg óvænt eignaðist þrjú barnabörn á aldrinum 5 til 14 ára.
Góð viðbót við barnabörnin mín.
Svo kom desember þá varð Helgi 30 ára og helt heljarmikla veislu, um 60 manns mættu þar. Leigði hann ser sal og hafði opið hús.
Það var líka í des, aðeins seinna að ömmubörn pöntuðu helgi með mer. Eg réði mer serlegan aðstoðarmann og let vaða . Við hittum fullt af jólasveinum, fórum á söng í landsbanka og sáum kveikt á jólatrénu á torginu.
Þarna eru við á Glerártorgi búin að sjá eitthvað af jólasveinum, amma farin að lýjast en börnin í fullu fjöri. Þetta var gott áframhald og amman dauðhrædd um að ganga framm af ungviðnum.
Aðeins síðar pöntuðu svo eldri börnin helgi já eða tíma með ömmu. Við fórum í skötuveislu til ömmu Dísu, fórum á Glerártorg , litum í tíubíó og sitthvað fleira.
Og þetta er síðara gengið sem kom til ömmu og gisti ásamt frænda.
Svo komu jólin ,við Helgi heldum þau að þessu sinni fram á Möðruvöllum í góðu yfirlæti hjá Hafdísi dóttir minni Jósef tengdasyni og fjórum börnum þeirra.
Bara takk fyrir að bjóða okkur um jólin.
Jæja fór það svo er eg þá ekki búin að skrifa þennan fína annál ???????? Þetta er smábrot af því góða sem gerðist á síðasta ári. Og svona í lokin ,takk fyrir allir vinir og vandamenn sem taka gömlu eins og hún er með kostum og göllum ,svona er eg bara og þar við situr.
Það sem var ekki gott, var að árið var serlega erfitt fyrir líkama og sál hjá mer. En það er verið að vinna í því. Getum við ekki sagt ::: Það verður aldrei það slæmt að það batni ekki::::::::::::::::::::::.
Gamla árið kvaddi með hvelli og það nýja heilsaði mer með hvelli ..... Verðum við ekki bara að segja að::::::::
"Fall er fara heill"
Bloggar | Breytt 18.1.2008 kl. 03:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
3.1.2008 | 00:59
Nýtt ár
Eg óska öllum árs og friðar á nýju ári
já komin er annar dagur á nýju ári. 'Aramótin tekin með trukki, unnið til klukkan ellefu kom heim og dreif mig út á plan með börnunum og fíruðum við nokkrum fílu já eða ýlu-bombum út í rokið. Svo þegar áramótaskaupið var búið fór fólk að tínast út karlarnir frekar búralegir með mismunandi stórar kökur!!! og konurnar í humátt. Og upphófst nú þvílíki hamagangurinn og ljósasjó. Eins gott að við förum ekki að banna flugelda eins og nú er gert í Noregi!!!! En þarna stóð eg í góðan hálftíma út á plani snerist í hringi og gapti upp í loftið og mátti ekki af neinu missa. Mesta mildi að eg fékk ekki flugeldaprik ofan í kok, eins og eg gapti heheheh.
Svo komu systir og vinkonur mínar og við áttum frábæra stund saman skemmtum okkur frábærlega og rauðvínstapparnir flugu í kross og svarta svefnmeðalið flaut yfir barmana á staupin. Entust við fram á miðja nótt. Takk fyrir skemmtunina stúlkur mikið var gott að hlægja svona.
Svo var stormað í vinnu níu að morgni á fyrsta degi ársins. Og gamla var bara mjög fersk..og vann til fimm...
Eftir vinnu var svo svaka veisla í sveitinni þar sem gullið mitt hafði boðið ömmu gömlu í afmæli fimm ára kallinn....
Þar á eftir þurfti eg með dót til sonar ... Svo greinilegt er að líf mitt hefur lítið breyst þótt það sé komið nýtt ár.
Annars er markmið mitt á þessu ári, að sama hvað gengur á þá ætla eg að hafa það gott og hugsa um sjálfan mig og mína heilsu. nú er eg komin í helgarfrí og er bara ekkert til viðtals með eitt eða anna , því það verður notað til uppbyggingar og safna brotum saman eftir ármótin
Síðar eins og "kallin sagði" ? Komi það sem koma vill og verði það sem verða vill.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Bloggvinir
-
Agnes Ólöf Thorarensen
-
Anna Guðný
-
Birna Guðmundsdóttir
-
egvania
-
Ein-stök
-
Erna
-
Erna Friðriksdóttir
-
Greta Björg Úlfsdóttir
-
Gudrún Hauksdótttir
-
Hafdís Jóhannsdóttir
-
Helga skjol
-
Herdís Alberta Jónsdóttir
-
Huld S. Ringsted
-
Jónas Björgvin Antonsson
-
lady
-
Ragna Valdís Elísdóttir
-
Renata
-
Sifjan
-
Sigríður B Svavarsdóttir
-
Sigurbjörn Friðriksson
-
Ylfa Mist Helgadóttir
-
Þráinn Brjánsson
Tenglar
Börnin mín stór og smá **********************************************
Börnin mín
- Hafdís dóttir mín
- Sólveig dóttir mín
- Daníel sonur minn
- G.M.S. Hálfnafna mín
Frændgarður ##################
Ættingjarnir
- Ása pjása
- Svenni frændi og fjö
- Þráinn frændi
- Salka frænka mín
- jónas frændi
- Júlli B. frændi
- Ása og Birgir
- jónas björgvin Einn enn frændinn
Vinir ++++++++++++++++++++++++++++
Vinafólk
- Pössunarpía
- Ella silikondóttir og megamom
- Sigrún í Noregi
- Ingunn ofurrollan
- mæja
- Ragnhildur Austanvindur!!
- Jóna sófakúrari???
- Elsa
- Helen góð
Skoða !!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!
Áhugavert
- Sprettur
- Eining Verkalíðsfélag
- Vitund
- Konur
- danmörk her er allt
- Föroya
- Veður
- Steven Gaman
- Íslandslag skoða
- http://
Leikir $$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$
Gaman
Gamla bloggið &&&&&&&&&&&&&&&&&&&&&&
Eldri færslur
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (25.5.): 0
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 30
- Frá upphafi: 89428
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar












