Leita í fréttum mbl.is
Embla

Bloggfærslur mánaðarins, desember 2007

Það vildi eg að væru alltaf jólin!!!

Gleðileg jól og jólarest.

Er þetta ekki alveg sérstakt að maður keyrir á marauðu og það á aðfangadag??????!!!!!!

Við her í Grundó (( hí hí ))  áttum mjög friðsæl jól.  Í gær ákvað  H.... sonur minn að flytja til mín um jólin, og mætti hann galvaskur um hádegisbil í dag.   Klæddu við okkur nú uppá og fórum með smá kort og mynd til ferðafélagans síðan í sumar, komum svo við hjá Kærustunni hans pabba með smá körfu, og droppuðum til " frænka mín"  til að faðma hana gleðileg jól.  

 Síðan lá leið okkar í sveitina í Möðrufell .. Þar var tekið vel á móti okkur og sat sú gamla eins og Drottning og var borið í hana kaffið eins og hún gat torgað.  Á meðan ábúendur undirbjuggu matinn og gerðu fínt.    Það verður nú að segjast að ekki á eg því að venjast að sitja eins og drottning á sjálfan aðfangadag og stússast ekki í mat.  Enn þetta hafðist samt þótt gamla ætti þar engan þátt .. Og áttu við mjög friðsælt og ánægjuríkt aðfangadagskvöld, samt er  fjölsk,  stór og margir pakkar.    Jólatréð er ekki lítið enn það hvarf í pakkahrúguna enda pakkar handa átta mans, og geri aðrir betur.  ( Eg veit að þið eruð 13, sílikon-dóttir í Danaveldi)    Það eru gott þegar það eru jól allir eru góðir við hvern annan og fólki líður betur.

Á heimleiðinni komu við við hjá annarri dóttir og systir drukkum þar meira kaffi og spjölluðum.     Nú eru við komin heim og H.... var feginn að skríða í holuna hennar mömmu sem hún eftirlet honum og horfir nú á gömul Evrovisjonlög sem hann var svo heppin að fá í jólagjöf.   Honum finnst það sko ekki lélegt....

Eins og áður segir er marauðir vegir og bara nokkuð hlítt úti ..

Aðfangadagur búinn, svo koma áramótin, áður enn maður veit af er svo komið sumar ,, sem völvan spáir nú ekki alveg gæfulega fyrir , svo kemur haustið og áður enn maður veit af eru komin jól aftur.....................................................................................  Svona er þetta allt fer í hring.

Verið góð hvert við annað , árið er að verða búið og við vitum ekki hvað bíður okkar á nýju ári???????

 


Góðir dagar.

Nú nú það hafa aldeilis verið góðir dagar hér á bæ undanfarið.

Eg fékk svo ágæta skilgreiningu á að vera búin að #öllu # fyrir blessuð jólin um daginn , þegar eg var að býsnast yfir að vita ekki hvað þetta #allt # þýddi!!!!   Ein dóttir mín benti mer á að það væri bara hvað mer fyndist vera #allt,#  svo nú er eg búin að öllu ,  Það er að vísu ekki komið upp jólatré, og trúlega fær það að hvíla sig í geymslunni þetta árið. En allir jólasveinarnir 136 eru komnir vítt og breitt um húsið...    Að vísu uppgötvaði eg þegar eg opnaði ísskápinn í kvöld , að víst hafði eg gleymt að fara í matvörubúð, en hvað með það?????!!!!!!   Er boðin í sveitina annað kvöld í mat, svo kemur hitt bara í ljós síðar.                        hehehehí.

Af veðrinu er helst að frétta að eitthvað varð minna úr þessu fárviðri sem ÞEIR þarna á veðurstofunni spáðu. Mer finnst samt rétt af þeim að spá duglega og helst verra en efni standa til, svo fólk se ekki að æða eitthvað til fjalla á illa búnum bílum og lenda svo bara í ógöngum Her er búið  að vera marautt og þokkalega gott veður . En  í kvöld byrjaði að snjóa. Eigulega bara svo ekki yrðu #Rauð jól#  Aldrei hef eg skilið af hverju þetta heita Rauð jól ,, enn ekki auð, já eða svört eða grá. Að vísu eru jólasveinarnir rauðir , enn það eru þeir hvort heldur sem það er snjór eða ekki.??  Svo er nú það!!!!!!!!!!!          Svo nú liggur hvít slæða yfir öllu her ....

Nú er eg búin að hafa tvær ömmuhelgar og á eina eftir .    Hvað er þetta ömmuhelgi???????           jú barnabörnin panta að gista eins og eina nótt hjá mer og þá eigna eg þeim smá tíma.

 Til dæmis fóru við á Glerártorg , og buðum H.... með,   að sýna okkur og sjá aðra, þá var nú alveg tilheyrandi að fá ser í svanginn

           Ömmuhelgi 001

Svo var ráfað í búðir , jólagjafir keyptar og farið í tíu bíó.   Allir sofnuðu svo vært eftir góðan dag.

      Einig var okkur boðið í skötu-steiketanfisk-og-soðning-veislu til kærustuna hans pabba á ÞORLÁKSMESSU. Lagðist það eitthvað mis-vel í manskapinn þetta með skökuliktina ,,, en þau létu sig hafa það að smakka og fengu ser svo bara steiktan fisk!!!! Gödduðu við í okkur hina ýmsu fisk-sortir af miklum móð og ís á eftir.

    Mjög skemmtileg stund þar sem í raun mættust fjórar kynslóðir.                                                   Ömmuhelgi 005

 

 

 

 

 

Enn á ný var Glerártorg heimsótt og börnum svo keyrt heim.     Við sonur vorum hinsvegar boðin í hangisaltkjötveislu hjá einni vinkonu okkar og var enn og aftur graðkað í sig af kappi, kjöt að þessu sinni.     Fékk eg svo að hitta yngsta barnabarnið og kúrðu við yfir barna DVD um stund eða þangað til hann sofnaði og amma dró ýsur af kappi.    Endirinn á góðum dögum var að enn ein vinkonan sat á planinu þegar eg kom heim og færði mer skreytingu og sitthvað fleira. Heppin kona eg .

Svo eru bara komin jól....    Óska eg öllum gleðilegra jóla og friðsællar hátíðar.


Sá síðasti

Þrettándi var Kertasníkir,                                                          kertasnikir
- þá var tíðin köld,
ef ekki kom hann síðastur
á aðfangadagskvöld.

Hann elti litlu börnin
sem brostu, glöð og fín,
og trítluðu um bæinn
með tólgarkertin sín.

Á sjálfa jólanóttina,
- sagan hermir frá, -
á strák sínum þeir sátu
og störðu ljósin á.

Svo tíndust þeir í burtu,                                                                             jola2
- það tók þá frost og snjór.
Á þrettándanum síðasti
sveinstaulinn fór.

Fyrir löngu á fjöllunum
er fennt í þeirra slóð.
- En minningarnar breytast

 Þrettándi, kom Snúruflækir,                                 snuruflaekir 13
þó ekki bara um Jól.
Skimast um allt húsið,
skoðar tæki og tól.

34.
Hann tekur alla víra
og vindur þeim saman.
Bindur fasta hnúta,
þá finnst honum gaman

Á sjálfa jólanóttina,                                    
stuttan frið þú færð.
Því fortíð mætir framtíð,
og færist yfir værð.

36.
En þessir fara ei burtu,
þótt hverfi frost og snjór.
Því fræknir fýrar hittast
og fá sér góðan bjór.

Svo lærist af svona svein,
sem tillitsemi stal.
Af þessa hermir fólk...
Er það sem verða skal?
 


Tólfti er þá einn eftir?

Ketkrókur, sá tólfti,                                                                          ketrokur
kunni á ýmsu lag. -
Hann þrammaði í sveitina
á Þorláksmessudag.

Hann krækti sér í tutlu,
þegar kostur var á.
En stundum reyndist stuttur
stauturinn hans þá.

 Vírus-sendir, sá tólfti,
vill þér ekki vel.
Tölvupóst dreifir,                                                          virussendir 12

sem drepur þína vél.

32.
Þú opnar póstinn óvart,
þá er tíðin erfið.
Það hendist allt úr minni,
og hrynur tölvukerfið


Gleymdi einum!!!

Ellefti var Gáttaþefur,                                                              gattathefur
- aldrei fékk sá kvef,
og hafði þó svo hlálegt
og heljarstórt nef.

Hann ilm af laufabrauði
upp á heiðar fann,
og léttur, eins og reykur,
á lyktina rann.

 Ellefti var Svitaþefur,
erfitt er að stöðva.
Í ræktinni er mest
að massa uppá vöðva.

30.
Risa bringa og herðar,
handleggi eins og skinkur.
En sturtu fer hann aldrei,
svo myndast mikill stynkur                                           svitathefur 11


Tíundi ??? eru komnir tíu sveinar??

Tíundi var Gluggagægir,
grályndur mann,
sem laumaðist á skjáinn
og leit inn um hann.
                                                                                             gluggagaegir
Ef eitthvað var þar inni
álitlegt að sjá,
hann oftast nær seinna
í það reyndi að ná.

Tíundi var Símaníðir,                                      simanidir 10
sá herjar oft á mann.
Seint, er tók að dimma,
hann tækifæri fann

28
Símasölu á kvöldin,
- úr sófa reif mann upp,
á lífeyri og kaskó,
svo könnun frá Gallu


níundi

Níundi var Bjúgnakrækir,                                                                                    bjugnakraekir
brögðóttur og snar.
Hann hentist upp í rjáfrin
og hnuplaði þar.

Á eldhúsbita sat hann
í sóti og reyk
og át þar hangið bjúga,
sem engan sveik.

 25.
Níundi var Tyggjóklínir,
sem tyggur dag og nótt.                   tyggjoklinir 9
Hann gildrur setur oft,
svo manni er ei rótt.

26.
Bak við hluti og undir,
bæði borð og stóla.
Fara tyggjó blettir
í buxur, skó og kjóla


Sveinki no:::

Skyrjarmur, sá áttundi,                                                                                    skyrjarmur
var skelfilegt naut.
Hann hlemminn o´n af sánum
með hnefanum braut.

Svo hámaði hann í sig
og yfir matnum gein,
unz stóð hann á blístri
og stundi og hrein.

23.                                                                     
Græjuglamur, sá áttundi,
með garg sem allir heyra.                                                 
Hann bassa og læti hækkar,                                graejaglamur 8
svo blæðir út úr eyra.

24.
Hann rúntar alla götur
og gellur kallar á.
En bara fær þær tómu,
Sem bílinn vilja sjá.


Helgin

Já enn ein helgin liðin.  Var í vinnutörn en fann samt tíma til að fara á dansiball með honum Friðjóni.........                Og sá sannarlega ekki eftir því!!!!!!!!!!!!!!    Mjög gaman!!!!!!!!!!!!            Það sem gerðist á ballinu fer ekki fyrir alþjóð, en geta má þess að sumar konur þóttu litlar og menn stórir. Sumir heldu að þeir væru komnir á sjens ennnnnnnnnnnnnnn    já já svo mörg voru þau orð usssssssssssssssssss

 

                                                                    Fagnámskeið 1 051

Það verður nú að segjast að ekki veit eg lengur hvort við búum á Íslandi eða hvað???   Um helgina var ís yfir öllu, og kalt.  Planið her var ísilagt og stórhættulegt. Í nótt þegar eg kom úr vinnunni var hins vegar komin 11 gr. hiti og sunnanþeyr ,, í morgum þegar eg leit út var eins og á góðum sumardegi, planið orðið autt og fínt.  Ef til vill þarf maður ekkkert til sólarlanda eftir áramót?????

Nú er sannarlega farið að síga á seinni hluta ársins, jólin á næsta leyti og fólk spyr gjarnan              " Ertu búin að öllu?"   Enn er mer spurn "Hvað er þetta allt"???     Getur einhver sparað því????  En við stressum okkur misjafnlega yfir þessari góðu hátíð, eg til dæmis er víst alltof róleg , ætla samt með pakka í dag sem eiga að fara í burtu.  Jólaskrautið komið upp að mestu, á bara eftir að kaupa svona eins og tíu jólagjafir, skrifa öll jólakort, ætla ekkert að baka , steikja laufarbrau né gera hreint.  Svo eg er bara í góðum málum.                                                  Svo koma áramótin og þá verður partý að vanda hjá gömlu .    Það er könnun í gangi her til hliðar þar sem kemur framm að 1 ætlar að vera heima 7 með fjölsk. og 7 mæta her. Gott mál,,, en því er ekki að neita að eg er farin að verða ansi forvitinn hverjir þessir 7 eru.  Gaman væri að vita það enn eins og einhver staðar stendur  #Komi það sem koma vill #  Tounge             


enn einn

hurdaskellir Sjöundi var Hurðaskellir,
- sá var nokkuð klúr,
ef fólkið vildi í rökkrinu
fá sér vænan dúr.

Hann var ekki sérlega
hnugginn yfir því,
þó harkalega marraði
hjörunum í.

 

 

Sjöundi var Hurðadældir,
sá fór úr bíl í æði.
Svo fólk fékk slæman glaðning,
er fór það út á stæði.

22.                                                                       hurdadaeldir 7                   
Hann var ekki sérlega
hnugginn yfir því,
þó vandamanna bíla
var kominn rispa í.                                            


Næsta síða »

Höfundur

Unnur María Hjálmarsdóttir
Unnur María Hjálmarsdóttir
Er lífsglöða kona sem dettur af og til í sjálfsvorkun og þá er gott að nöldra her. Er á besta aldri á besta tíma . Skál og verum glöð!!!

Smelltu á þetta...

Er ég á þessum lista??

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband