Leita í fréttum mbl.is
Embla

Það er nú svo!!!

Já það er nú svo ...    

Það kyngir niður snjónum núna eins og hann í háloftunum fái borgað fyrir að dusta lélegu dúnsængina sína.   Hins vegar  í gærkveldi var svo mikið frost á rúðunum á bílnum mínum að eg mátti láta hann ganga ansi lengi til að þiðna, á rándýru bensíni. Svo í kvöld var dyngja af blautum snjó á sama bíl og þegar eg mokaði af honum braut eg þessa líka fínu sköfu sem jafnframt var sópur.  Þótti mer þetta frekar miður þar sem eitt barnabarnið mitt gaf mer þessa fínu græju af góðum hug.

Já að tala um bensín, það er ekki langt síðan það kostaði 98,00 kr. og eg sagði : það getur ekki farið mikið ofar!!!!!     Og viti menn í dag er bensínið í 141,08, já eg legg ekki meira á ykkur.                Þannig að þeir sem voru svo heppnir að fá kauphækkun á dögunum, eiga allavega fyrir hækkuninni.  Annars vill það nú brenna við að þegar búið er að semja og stundum fyrr, og einhver hækkun hefur verið í boði,,,   þá hækkar öll neysluvara meira enn hækkunina á laununum er.     Svoleiðis er bara Ísland í dag.

Nú er rafvirkinn búinn að koma og klára sitt.  Enn ekki bólar á smiðnum, eg hallast helst að því að hann kunni hvorki á mánaðardaginn eða klukku.      

 

             Þetta stal eg á síðunni hjá Pössunarpíuni minni    

  Vinur þinn er þér allt. 

 Hann er akur sálarinnar, þar sem samúð þinni er sáð og gleði þín uppskorin. 

 Hann er brauð þitt og arineldur. 

 Þú kemur til hans svangur og í leit að friði.  

    Þegar vinur þinn talar, þá andmælir þú honum óttalaust eða ert honum samþykkur af heilum hug. 

 Og þegar hann þegir, skiljið þið hvor annan. 

 Því að í þögulli vináttu ykkar verða allar hugsanir, allar langanir og allar vonir ykkar til, og þeirra er notið í gleði, sem krefst einskis


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Vonandi er þetta bara páskahretið Unna mín, eigum við ekki vara að fara að hjóla þegar stittir upp bensínið er allt of dýrt

Ásrún (IP-tala skráð) 12.3.2008 kl. 12:28

2 identicon

kvitt , kvitt, kvitt, og svo auðvitað knús.

Pössunarpían (IP-tala skráð) 13.3.2008 kl. 07:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Unnur María Hjálmarsdóttir
Unnur María Hjálmarsdóttir
Er lífsglöða kona sem dettur af og til í sjálfsvorkun og þá er gott að nöldra her. Er á besta aldri á besta tíma . Skál og verum glöð!!!

Smelltu á þetta...

Er ég á þessum lista??

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Senda í CCI | Hafðu samband