Leita í fréttum mbl.is
Embla

Færsluflokkur: Bloggar

Dagskrá ættarmóts 25 júní

Föstudagur 25. júní :Kl. 18.00           Móttaka gesta.Skráning í anddyri íþróttahús og afhending nafnspjalda.Umsjón : Björk og Snjólaug Brjánsdætur.

Hittingur og spjall á tjaldsvæði. Kl. 21.00          

Myndasýning.Júlíus Jónasson  sýnir gamlar myndir úr safni Jónasar Hallgrímssonar. Endilega sendið Júlla myndir á netfang:  julius@salurinn.is 

Kl. 23.00           Varðeldur. Umsjón : Halla Soffía Jónasdóttir og félagar.Egill Antonson spilar á gítar og stjórnar fjöldasöng

 Laugardagur 26. júní :

 Kl. 10.00           Opið fyrir ættarmótsgesti í sundskála Svarfdæla fram að hádegi.                        Ath. þátttaka í sundi er á eigin ábyrgð.

 Kl. 14.00           Kaffisamsæti í sal iþróttahússins. Við leggjum saman á kaffihlaðborð í minningu forfeðra okkar. Allir njóta.Umsjón m. kaffihlaðborði : Anna Björg Björnsdóttir og Sigrún Hjaltadóttir.Kynning á þátttakendum og myndataka.Ávarp f. h. undirbúningnsnefndar : Unnur María Hjálmarsdóttir. 

Kl. 16.00           Rútuferð um söguslóðir/rúntur á einkabílum. Blómsveigur lagður að leiði Júlíusar og Jónínu í Upsakirkjugarði. Minningarstund.Leiðsögumaður : Júlíus Baldursson. Ath. panta þarf í rútuferð hjá Júlíusi í s. 897 6055. Verð : 700.pr. sæti.

 Kl. 18.00           Leikir og fjör á tjaldsvæði fyrir börn og fullorðna : boðlaup, pokahlaup, reipitog og fleira. Fjör og læti.                        Umsjón : Arnar Símonarson og Unnur María Hjálmarsdóttir. 

Kl. 19.30           Sameiginlegt borðhald í sal íþróttahússins.                         Veislustjóri : Arnar Símonarson.Súpa, grillmatur, meðlæti, kaffi og kaka frá Veisluþjónustunni Dalvík. Við skemmtum okkur saman ! 

Sunnudagur 27. júní Kl. 10.00           Opið fyrir ættarmótsgesti í sundskála Svarfdæla fram að hádegi.                        Ath. Þátttaka í sundi er á eigin ábyrgð

.Kl. 12.00           Dagskrárlok á ættarmóti Sunnuhvolsættar. Við kveðjum og knúsum hvurt annað.

Opinbert ættarmóti lokið . Að sjálfsögðu geta allir ílengst


Svona er það !!!

Mikið er langt síðan ég hef skrifað her.  Margt hefur drifið á dagana .    Konan búin að bregða sér ti Kaupmannahafnar og svo er djöflast í ræktinni .  

 

  IMG_2224  

Svona lítur sú gamla út í dag .....  23 kg. lettari en á bláu peysuni

  IMG_1372

Svona var sú gamla þegar hún kom úr Ditoxinu í júli.

         IMG_0411

Og svona var frúin um áramót 2008-2009


ja herna

Enn og aftur gleymdi ég að kaupa lottó man það bara næst
mbl.is Þrefaldur lottópottur næst
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

hummm

Bíðið við "InDefence" ???????????    Hvað er það ??????   Eitthvað íslengst ????   Eða eru einhverjir útlendingar komnir til að mótmæla ??????   Nú er ég alveg hætt að skilja...????
mbl.is Boða samstöðufund á Austurvelli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það var mikið...........

Já það var mikið að ég nennti að skrifa her....     Nú  er konan búin að vera í fríi síðan 1 júlí .   Lagði gamla land undir hjól og brá sér ásamt Helga vestur í Gufuskála, þar sem Helgi ætlaði að skemmta sér í  liðlega hálfan mánuð.  

                                          IMG_1278

Þeir í Ólafsvík nota bátana upp á þurru landi. Enda með allt þetta kvótavesen er það ef til vill best. Ég kom við hjá Pössunarpíunni minni og kyrrsetti hún mig vegna þreytulegs útlits, gaf mer smá frúarvín og skipaði mér í rúmmið.   Leiðin lá svo til Reykjanesbæjar, með smá viðkomu í Reykjavík, þar sem ég tók hús á nokkrum vinum og  ættingjum.                   Svo kom ég suður á Völl hummm ...........   

                                 IMG_1327

já ég fór í DETOX .Og það er nokkuð sem ég sé ekki eftir , þarna var ég og borðaði grænmeti í hálfan mánuð, reyndi að hreyfa mig og lét nudda mig alveg út í eitt .  Og losnaði við gamlar syndir vítt og breytt um líkamann.   Fór meira að segja í ristilhreinsun !!!!!     Ég verð nú að nefna það að þarna var alveg frábær hópur sem var alveg yndislegur. Ekki skilur maður við Detoxin öðruvísi en nefna framkvæmdarstjórann hana Sigrúnu, sem var alltaf boðin og búin til að hlusta á okkur og aðstoða. Það er leitun á annarri eins hlýu og útgeislun hjá einni manneskju......

                                              IMG_1372

Svona leit Frúin út ný hreinsuð ,  nudduð, úthvíld og sæl.

Þegar heim kom manaði ein dóttir mín mig með sér til einkaþjálfar ,,,,,,,,   já svo nú hamast sú gamla og svitnar eins og stunginn grís, ýmist hjá þjálfa , á göngu eða í sundi....   Ef til vill kemur meira um það síðar !!!!!!!!!

Verið góð hvert við annað......


Það var og......

Það hlaut að koma að því að Raddirnar létu í sér heyra aftur.  Verð að segja að ég hef verið að bíða eftir þessu....   Sér nú stjórn landsins sæng sína útbreidda ?????
mbl.is Funda á Austurvelli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað hefur breyst ???????

Já Hvað hefur breyst ?????  " Ég velti því svolítið fyrir mér " Eigum við ekki bara að vera glöð með " Tímamóta vinstri  stjórn" já í fyrsta sinn í sögu okkar???   "Tímamóta samningi um ingöngu í ,,,,,,    já í hvað ???? Tímamóta skuldsetning????   ja hvað veit ég ????    Nýja stjórnin getur ekki státað af því að vera tímamóta stjórn sem er mótmælt,,,  þar sem fólkið í landinu tók og ruddi gömlu stjórnini frá , með mótmælum.....  En nýja stjórnin getur samt státað af að vera nýj stjórn, sem ekki er mótmælt..... Enn er mótmælt utan við hið háa alþingi , sem hefur tapað virðuleika sínum , fyrir tilstulan framápotara og ..............  já má ekki segja svo ljótt!!!!!!

 Hvað hefur breyst síðan við kusum nýja stjórn yfir okkur, og réðum nýtt fólk til starfa???????   hummm     En er fólk að mótmæla, lítið gerist í málum fólks sem er fangar í eigin skuldafeni, fangar með dýra bíla og stór hús sem það getur ekki einu sinni selt, þar sem engin hefur efni á að kaupa. já ég spyr???

Ég horfði á sjónvarpið þegar þingið byrjaði og hreyfst af því hvað það væru feyki góðir ræðumenn sestir á þing.    En hvað gerðist?????  Nú spyr ég hvar eru þessir 27 nýju þingmenn??????   Hvar er þessi ferski andblær sem við vonuðumst eftir???????   Já nú auglýsi eg eftir þessu nýja blóði !!!!!!

Gleymið ekki að en er hægt að flæma ykkur frá störfum og það verða aftur kosningar!!!!!!!!

                IMG_0266

Af mer er nú allt ágætt að frétta, dagarnir líða allt of fljótt. Það er komið sumar, nú er ég til dæmis að hvíla mig á sólinni svo ég þurfi ekki að sópa upp brunarústum.

Þórsaravöllurinn er að verða tilbúinn enda veitir ekki af fyrir landsmótið í sumar.

Nýja Naustabónus mælis vel fyrir her, þeir sem búa þarna syðra mjög ánægðir að geta labbað í búðina.

Nú er mála að sleikja sólina svo ég segi "  yfir og út "


Síðasti tölvutíminn

Þá er síðasti tölvutíminn hjá syni mínum og ég set inn nokkrar myndir fyrir hann..

                               IMG_0486

Her er Helgi með frænda sinn Leif Mána á kaffihúsi á Glerártorgi.

                             IMG_0489

Þarna er hann daginn fyrir kosningar niður á Torgi.

                              IMG_0619

Her eru nokkrir vinir hans að syngja og leika á bókasafninu á sýningunni List án landamæra.

                             IMG_0622

   Svo hitti hann líka vin sinn frá Dalvík Kristján Ólafsson

                              IMG_0620

Og þarna hitti hann líka Herborgu Harðar vinkonu sína frá Dalvík.


Það er nú það...

Rakst á þetta á netinu og fékk leyfi til að setja það her!!!!!!

Olga er bareigandi í Grundarfirði. Til þess að auka veltuna þá ákveður hún að leyfa dyggum viðskiptavinum—sem flestir eru atvinnulausir alkar—að drekka út á krít.

Hún skráir allt sem drukkið er í þykkan kladda. Þegar þetta þægilega fyrirkomulag spyrst út þá flykkjast nýir viðskiptavinir á barinn. Frelsi fólks til þess að njóta augnabliksins og borga seinna gefur Olgu valið tækifæri til þess að hækka verðið á vinsælustu veigunum, bjór og víni

Salan eykst gífurlega. Ungur og efnilegur lánafulltrúi í hverfisbankanum gerir sér grein fyrir að þessar skuldir viðskiptavinanna eru framtíðarverðmæti. Hann hækkar því yfirdráttarheimild Olgu í bankanum. Lánafulltrúinn telur þetta vandræðalaust vegna þess að skuldir alkanna eru haldgóð veð.

Í höfuðstöðvum bankans breyta sérfræðingar í æðri peningalist þessum viðskiptaskuldum í Drykkjuskuldabréf, Alkabréfavafninga og Gubbuafleiður. Þessi verðbréf—sem virt áhættumatsfyrirtæki hafa (gegn þóknun) stimplað AAA gæðastimpli—ganga síðan kaupum og sölum út um allan heim. Raunverulega skilur enginn hvað nöfn bréfanna þýða eða hvernig þau eru tryggð. Samt sem áður halda þau áfram að hækka. Þau eru metsöluvara.

Einn góðan veðurdag, þrátt fyrir að bréfin séu enn á uppleið, þá ákveður áhættusérfræðingur bankans að nú sé tímabært að drykkjuhrútarnir á bar Olgu borgi eitthvað upp í skuldirnar. Þeir geta það hins vegar ekki. Olga getur því ekki staðið í skilum við sína skuldunauta og lýsir yfir gjaldþroti. Drykkju- og Alkabréf falla um 95%. Gubbubréfin gera betur og ná stöðugleika eftir 80% fall. Nýr veruleiki blasir við hjá fyrirtækjum sem seldu barnum á lánakjörum og hafa jafnvel líka fjárfest í fyrrnefndum bréfum. Heildsalan sem seldi Olgu vín er gjaldþrota og fyrirtækið sem seldi bjórinn er yfirtekið af keppinauti.

Eftir dramatísk fundahöld og andvökustundir sem standa samfleytt í marga sólarhringa þá ákveða stjórnvöld að bjarga bankanum.

Nýr skattur er lagður á. Bindindismenn eru látnir borga brúsann.

Næsta síða »

Höfundur

Unnur María Hjálmarsdóttir
Unnur María Hjálmarsdóttir
Er lífsglöða kona sem dettur af og til í sjálfsvorkun og þá er gott að nöldra her. Er á besta aldri á besta tíma . Skál og verum glöð!!!

Smelltu á þetta...

Er ég á þessum lista??

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband